forræði
25.05.2007 01:48:09 / forraedi

Sorry

Sorry gott fólk, hef verið frekar upptekinn undanfarið og ekki haft tíma til að setja efni hér inn.

uuu hvert var ég kominn ?

ahh piparsveinalífið.

Það var erfitt að hefja hið svokallaða piparsveinalíf þar sem ég og barnið vorum mjög náin og varla leið sá dagur að við eyddum ekki góðum tíma saman, ég sótti barnið einnig oft á leikskólann snemma ef ég hafði átt stuttan vinnudag.

Já ég fílaði það í botn að vera pabbi og fannst ekkert geta toppað það starf.

Svo bregðast herðatré sem önnur tré (eða eitthvað svona málsháttar bla bla)

Nú þurfti allt í einu að  fara að skipuleggja  umgegnina, önnurhver helgi og allt þetta bull
sem fylgir skilnaði, ég gat ekki náð í barnið þegar ég vildi og eðlilega vöknuðu spurningar í huga barnsins. af hverju? hvers vegna? því? er þetta svona?
Það versta var að blessað barnið var áttavillt og skildi hvorki upp né niður í þessum nýju og takmörkuðu samskiptum.


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 21:00:12 / forraedi

bæ bæ

Já haltur leiðir blindann, en ég fór samt í seinni tíð sambandsins að efast um sannleiksgildi frásagna hennar þegar upp fóru að koma atvik á við skjalafals, ásakanir (margra) vinnveitenda hennar um fjárdrátt og þjófnað, en samt trúði maður á það góða í mannskeppnunni og vonaðist að þetta væri tímabil sem tæki enda með aðstoð sérfræðinga, en allt kom fyrir ekki. málin urðu fleiri og stærri, skapsveiflur urðu miklar, (sjálfsagt samviskan að segja til sín ef hún hefur þá einhverntíma verið til staðar) Lygavefurinn stækkaði og ég farinn að vita of mikið, þannig að einn góðan veðurdag nánast eins og þruma úr heiðskíru lofti kom þessi fleyga setning,,,,,,,, Ég elska þig ekki lengur og vil að þú flytjir út, eða á góðri íslensku FUCK OFF, og jú svo fylgdu með einhver orð um það að ég væri ekki að ryksuga og vaska upp nógu oft.
Tveim dögum seinna stóð ég á tröppunum með gíroseðla í annari og skítugar naríur í hinni, og jú með bíllykklana í vasanum þannig að ég þurfti ekki að taka strætó á vit piparsveinalífsins........................

» 1 hafa sagt sína skoðun

17.12.2006 20:23:02 / forraedi

sambúðin

Eins og ég sagði þá gekk svosem á ýmsu í sambúðinni, og fljótlega fór að koma í ljós að ekki var allt með felldu. Stúlkan sem ég hafði fallið fyrir var víst með ýmislegt óhreint í pokahorninu, en minn svona ástfanginn og vitlaus neitaði að trúa því.
Já það er magnað hvað maður getur verið blindur á það sem er að gerast í bakgarðinum hjá manni.

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.12.2006 16:42:55 / forraedi

búið samband

Já þetta byrjaði allt fyrir nokkrum árum síðan, þegar uppúr slitnaði í sambandi mínu og barnsmóður minnar, bara svona eins og gerist og gengur.
það var svosem búið að ganga á ýmsu en ekkert í líkingu við það sem átti eftir að gerast seinna...................................

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.12.2006 16:27:20 / forraedi

Velkomin/nn á BlogCentral

Góðan dag, Þetta blogg sem mun fara hér fram mun vekja sterk viðbrögð hjá þeim sem það lesa,
hér mun ég rekja sögu nokkra sem er ekki skemmtileg og frekar ógnvekjandi.
Ég hef staðið í stappi við barnsmóður mína um umgengni með barni okkar, og mun á komandi vikum og mánuðum rekja þessa sögu, ásamt því að leyfa ykkur að fylgjast með gangi mála í þessari erfiðu báráttu...

FAÐIR

» 0 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill